Bleika peysan hans Jóns og "Cognitive Dissonance"
Hann jón er í bleikri peysu. Það vita allir að hann er í bleikri peysu og hann er hættulegur út af bleiku peysunni. Þú skalt passa þig á honum og bleiku peysunni. Jón var alltaf góður við kisuna sína og kisan kúrði oft í bleiku peysunni hans. Meira að segja kettirnir í hverfinu elskuðu bleiku peysuna hans Jóns.
(Ok. Segjum að það líði 2 vikur frá því að þú heyrðir þetta..)
Það var smá misskilningur, hann var ekki í bleikri peysu.
Heldurðu að þú sæir hann ekki ennþá fyrir þér í bleikri peysu? Heldurðu að það væri ekki fólk sem héldi áfram að segja að hann væri í bleikri peysu? Bara það að ég sé ennþá að tala um hvort hann sé í bleikri peysu eða ekki skapar spurninguna enn í höfðinu á þér "er hann í bleikri peysu eða ekki?"
Cognitive Dissonance
Þetta er það sem pólitík gengur út á í dag. Þessi áróður reiðir sig á það sem kallast "Cognitive dissonance" og veldur því að það er mun erfiðra að fá fólk til að breyta um skoðun en það er að fá fólk til að fá skoðunina í byrjun.
Það er meira að segja nýlega komin út rannsókn sem sýnir að fólk er enn líklegra til að standa harðar á trúnni á að hann sé í bleikri peysu við það að einhver segji þeim mótrök gegn því.
Það er ennþá til fólk sem heldur því fram að það hafi verið WoMD í Írak. Það er ennþá til fólk sem heldur að sjálfstæðisflokkurinn sé góður flokkur, það er ennþá til fólk sem heldur að það sé til global warming, það er ennþá til fólk sem heldur að það sé betra fyrir okkur að ganga í ESB....
Það sem er verra er að það er líka erfitt fyrir mig sjálfan að vita hvort einhver skoðun sem ég sé með sé rétt eða hvort ég sé orðinn of bundinn henni sjálfur til að geta breytt henni.
Hve greint fólk er, veraldrarvant, osfrv hefur engin áhrif á þetta, við erum öll með sömu tegund af heila þó við séum mis-gáfuð.
Þrátt fyrir að staðreyndirnar, þá breytir fólk mjög erfiðlega um skoðun.
Ef ég spyrði þig, í hvernig peysu var Jón? Hvað hugsaru?
Þó þú vitir að hann sé ekki í bleikri peysu, þá þori ég að veðja að bleik peysa sé það sem kom fyrst upp í huga þinn.
:)
